lærandi, vinnandi, dansandi, njótandi, í veseninu....
29. október 2008 klukkan 10:56
Sit á bókhlöðunni og þarf virkilega á því að halda að lesa í málvísindum....er búin að skanna allt sem mér dettur í hug í netinu...og hvað er ég að gera núna? lesa? neeeeei,...ég ákvaða ð blogga!
Það er búið að vera alveg meira en nóg að gera hjá mér síðustu dag, svona fyrir utan endalaust verkefnaskil og próf í skólanum, þá er alltaf e-ð annað sem fellur til; vinna, fara með Mike að kenna út um hvippinn og hvappinn, fara á fundi...ég fer í vinnuna, skólann, læri, snýst e-ð og svo er bara komið kvöld og ég dottin í beddann.
Ég skemmti mér samt konungleg við þetta allt saman, ekki misskilja mig! Það er bara eitt sem pirrar mig við að vera í námi, en það er þetta endalausa samviskubit sem það kemur inn hjá manni, maður gæti nefnilega alltaf verið að læra skiljiði! En það er auðvitað ekki mögulegt....þó að það væri mögulegt að eyða mun meiri tíma í námið en ég er að gera :os En það er alveg sama hvað maður gerir, þó að maður eyði löngum tíma með bækurnar fyrir framan nefið, þá einhvern vegin klárar maður aldrei að læra...svo fer maður að eyða tímanum í e-ð annað og þá er ég alltaf með svona "ahh....ég ætti að vera að læra" tilfinningu á bak við eyrað....mér finnst það ekki skemmtilegt!
Við Mike tókum okkur samt smá frí frá öllu og fórum aðeins út fyrir borgarmörkin um síðustu helgi, fórum Hótel Rangá og vorum þar frá laugardegi fram á sunnudag...það var mjöööög ljúft. Rosalega flott hótel og við fengum svona Junior suite, með risastóru nuddbaðkari, einka heitapott úti á verönd, risa flatskjá....við slöppuðum rosa vel af, borðuðum góðan mat og létum stjana við okkur...hið ljúfa líf á þessum miklu kreppu tímum! ;o)
Annað kvöld er ég að fara í sumar-loka-uppskeru-hátið Bláa Lónsins og allra helstu ferðaþjónustu aðilla í RVK. Það er víst alltaf e-ð rosa dæmi, við hittumst öll í fordrykk í Hreyfingu og förum svo þaðan í rútum í BL þar sem við förum í lónið og spa, gerum okkur svo fín og sæt, og svo er dinner í Lava restaurant...þemað er "suðrænt og seiðandi", fólk beðið um að mæta í einhverju rauðu og svo verða þarna spænskir dansarar og Tómas R. Einarsson & co. sjá um tónlistina allt kvöldið. Hljómar vel, og það er mjög góð mæting úr vinnunni minni svo að ég býst við góðri skemmtun! :)
Svo á föstudagskvöldið er hrekkjavökuparty hjá nokkrum tungumáladeildum HÍ, þar á meðal spænsku..svo að ég verð að vinna í því að redda mér búning fyrir það...svo ætla ég að henda mér noður í sæluna í laugardagsmorgun, ég hef ekki farið síðan um versló og það er einfaldlega of langur tími liðin, svo ekki sé meira sagt! Mike ætlar að verða eftir hér, því að það er e-ð rosa húllumhæ í vinnunni hans alla helgina :)
Gott og spennandi plan framundan og í tilefni af því ætla ég að opna bækurnar mínar núna....
Þangað til næst!
Sandra

Sandra Björk Bjarkadóttir
3 athugasemdir
3 athugasemdir